Land risið um 2-3 cm frá páskum

Frá eldgosinu í gær, 7. apríl.
Frá eldgosinu í gær, 7. apríl. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson

Land í Svartsengi hefur risið um 2-3 sentimetra frá 2. apríl til 7. apríl. Er það minna landris en mældist eftir fyrri gos síðustu mánuði.

Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að aukið landris gæti verið merki um að kvikuflæði hafi aukist inn í Svartsengi, eða að tregða sé komin í flæði kviku úr eldgosinu.

Hraun rennur aftur til suðurs 

Einn gígur er virkur og flæddi hraun úr honum í suðruátt í gærdag í fremur afmörkuðum straumi, sem varð að tilkomumikilli hrauná. 

Jafnframt hækkaði yfirborð kviku í gígnum smám saman þar til hann nánast fylltist. Nyrðri gígbarmurinn brast um kl. 21.30 í gærkvöldi svo kvika fór að streyma í norðurátt.

Í dag 8. apríl má sjá að hraunflæðið er að megninu til aftur farið að renna til suðurs en sú framrás kviku sem við sáum í gærkvöldi og nótt til norðurs, virðist hafa bunkast þar upp á hæðina. Gígbarmurinn heldur áfram að hlaðast upp.

Graf/Veðurstofa Íslands

Sambærileg hegðun og í Geldingadölum

Hraunrennsli er greinanlegt á óróamælingum 1 til 2 Hz. þegar hraunstraumurinn frá gígnum er hvað mestur, eykst óróinn samhliða. Eftir að gígbarmurinn gaf sig þá má sjá að óróinn fellur niður aftur.

Sambærileg óróavirkni sást einnig í eldgosum í Geldingadölum þar sem órói jókst þegar að hraunstraumurinn jókst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert