Birna sett tímabundið sem sýslumaður á Vesturlandi

Birna Ágústsdóttir.
Birna Ágústsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi, frá 1. júní til og með 31. maí 2025. Tilefni setningarinnar er beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti.

„Í ljósi þess að nú stendur yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð er að þeirri vinnu verður ekki lokið fyrir 1. júní 2024, var sú ákvörðun tekin að setja Birnu Ágústsdóttur tímabundið til að gegna embættinu á Vesturlandi til viðbótar við eigið embætti á Norðurlandi vestra. Birna mun því gegna báðum embættunum á framangreindu tímabili,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 

Þá kemur fram, að sú ákvörðun að setja sýslumenn tímabundið yfir fleiri en eitt embætti í stað þess að skipa nýjan til fimm ára, sé tekin vegna þeirra tímamóta sem sýslumannsembættin standi nú á.

„Verið er að móta framtíðarstefnu í málefnum sýslumanna og þykir af þeirri ástæðu ekki rétt að taka ákvarðanir til lengri tíma um embættin sem kunna að fara gegn þeirri stefnu. Þannig var Kristín Þórðardóttir, sýslumaðurinn á Suðurlandi, sett tímabundið yfir embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum í október 2023. Þessi tilhögun er einnig í samræmi við þær áherslur ráðherra í málefnum sýslumanna að unnið verði að því að fella niður áhrif umdæmismarka gagnvart almenningi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert