Kjartan Gunnarsson hætti störfum sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins um áramótin Andri Óttarsson tók við starfinu. Framkvæmdastjóraskiptin fóru fram á fundi Geirs H. Haarde, forsætisráðherra og formanns flokksins, og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og varaformanns, með Kjartani og Andra í Valhöll í dag.
Greint var því á fundi miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins 3. október sl., að Kjartan Gunnarsson óskaði eftir að láta af störfum. Um leið og miðstjórnin fellst á þá ósk var samþykkt að ráða Andra Óttarsson hdl. í starf framkvæmdastjóra. Ákveðið var að framkvæmdastjóraskiptin skyldu fara fram samkvæmt nánara samkomulagi formanns flokksins og fráfarandi og viðtakandi framkvæmdastjóra.
Andri kom til starfa á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í byrjun október og hefur starfað með fráfarandi framkvæmdastjóra síðan. Kjartan hefur verið framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins frá því haustið 1980.