Hefur gætt kosningadyra í 40 ár

Sigfús Sigfússon hefur verið dyravörður á kjörstað á Norðfirði í …
Sigfús Sigfússon hefur verið dyravörður á kjörstað á Norðfirði í 40 ár samfleytt. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Sigfús Sigfússon hefur verið dyravörður á kjörstað á Norðfirði í 40 ár samfleytt.  Það var mál manna sem komu að kjósa á kjörfundi í morgun og Sigfús vísaði inn í kjörklefann að hann væri búinn að gegna þessu starfi svo lengi sem elstu menn muna og væri orðinn ómissandi kennileiti fyrir kjósendur.

Kjörfundur hófst í Barnaskólanum á Norðfirði klukkan 9:00 í morgun og allt stefnir í að kjörsókn verði með ágætum, enda kosningaveðrið með eindæmum gott, glaðasólskin og vart bærist hár á höfði.

Þá höfðu 163 utankjörfundaratkvæði borist kjörstjórninni á Norðfirði í morgun.

Að sögn Níelsar Hjálmarssonar lögreglumanns á Norðfirði kusu 150 utan kjörfundar hjá honum fyrir þessar kosningar sem er mun meira en fyrir þær síðustu, sem voru forsetakosningar, en þá kusu 100 manns utan kjörfundar hjá honum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert