Forsætisráðherra biðst lausnar

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands.
Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forseti Íslands átti í dag fund á Bessastöðum með Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra. Á fundinum baðst ráðherra lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sína. Forseti féllst á lausnarbeiðni hans en óskaði þess jafnframt að stjórnin sæti uns tekist hefði að mynda nýja ríkisstjórn.

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands er ekki búist við því að forseti Íslands feli neinum formanni þeirra stjórnmálaflokka sem nú eiga fulltrúa á þingi umboð til ríkisstjórnarmyndunar í dag.

Samkvæmt heimildum mbl.is hefur forseti Íslands boðað formenn allra flokka á Alþingi á sinn fund á morgun.

Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sigurður Ingi Jóhannsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sigurður Ingi Jóhannsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert