Magnús Örn stefnir á 2. sætið

Magnús Örn Guðmundsson.
Magnús Örn Guðmundsson. Ljósmynd/Magnús Örn Guðmundsson

Magnús Örn Guðmundsson viðskiptafræðingur býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi sem haldið verður 20. janúar. Magnús Örn situr í bæjarstjórn Seltjarnarness, er formaður íþrótta- og tómstundanefndar og situr í skólanefnd bæjarins. Hann starfar sem forstöðumaður hjá Stefni hf.

Fram kemur í fréttatilkynningu að Magnús leggi áherslu á lága skatta, gagnsæja og skilvirka stjórnsýslu, hátt þjónustustig í grunnþjónustu og forgangsröðun framkvæmda án skuldasöfnunar. Sömuleiðis leggi hann áherslu á að skipulagsmál þurfi að nálgast með meiri yfirvegun í sátt við bæjarbúa og vill raunsæi í samgöngumálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert