Framboðslisti Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur í gærkvöldi. Er þetta þriðji listi VG fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem er samþykktur, en áður hafa komið fram listar á Akureyri og í Kópavogi.
Núverandi bæjarfulltrúi VG í Hafnarfirði, Elfa Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir, verður oddviti listans, en annað sæti á listanum skipar Fjölnir Sæmundsson, Kristrún Birgisdóttir er í því þriðja, Júlíus Andri Þórðarson í því fjórða og fimmta sætið skipar Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir.