Jón Ingi leiðir Viðreisn í Hafnarfirði

Jón Ingi Hákonarson.
Jón Ingi Hákonarson. Ljósmynd/Aðsend

Jón Ingi Hákonarsson, ráðgjafi í starfsendurhæfingu og MBA, leiðir lista Viðreisnar í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí.

Vaka Ágústsdóttir, ráðningar- og þjálfunarstjóri LS Retail, er í öðru sæti og Þröstur Emilsson framkvæmdastjóri í því þriðja.

Fram kemur í tilkynningu að Viðreisn sé frjálslynt stjórnmálaafl sem leggi áherslu á jafnrétti og jöfn tækifæri allra, frelsi til orðs og athafna sem hefti ekki frelsi annarra.

Frambjóðendur Viðreisnar.
Frambjóðendur Viðreisnar. Ljósmynd/Aðsend

Framboðslisti Viðreisnar:

  1. Jón Ingi Hákonarson, ráðgjafi í starfsendurhæfingu, MBA
  2. Vaka Ágústsdóttir, ráðningar- og þjálfunarstjóri LS Retail
  3. Þröstur Emilsson framkvæmdastjóri, formaður velferðarnefndar Viðreisnar
  4. Sunna Magnúsdóttir viðskiptafræðingur
  5. Árni Stefán Guðjónsson, grunnskólakennari og handboltaþjálfari
  6. Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta
  7. Ómar Ásbjörn Óskarsson, varaþingmaður og markaðssérfræðingur
  8. Þórey S. Þórisdóttir, doktorsnemi í viðskiptafræði, formaður Viðreisnar í Hafnarfirði
  9. Hrafnkell Karlsson, menntaskólanemi og fráf. formaður Hinsegin félagsins Bur í MH
  10. Harpa Þrastardóttir, verkfræðinemi og umhverfis- og gæðastjóri
  11. Daði Lárusson, félags- og viðskiptafræðingur og markmannsþjálfari
  12. Edda Möller, útgáfustjóri Skálholtsútgáfunnar
  13. Jón Garðar Snædal Jónsson byggingafræðingur
  14. Ásta Rut Jónasdóttir stjórnmálafræðingur
  15. Þorvarður Goði Valdimarsson almannatengill
  16. Lilja Margrét Olsen lögfræðingur
  17. Þorsteinn Elí Halldórsson framkvæmdastjóri
  18. Sóley Eiríksdóttir sagnfræðingur
  19. Halldór Halldórsson öryrki
  20. Kristín Pétursdóttir hagfræðingur
  21. Benedikt Jónasson múrari
  22. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert