Glúmur segist hafa verið allsgáður

Glúmur Baldvinsson í umræðum fulltrúanna í gærkvöldi.
Glúmur Baldvinsson í umræðum fulltrúanna í gærkvöldi. Skjáskot/Ríkisútvarpið

„Mér fannst þetta bara mjög gaman, þetta er í fyrsta skipti sem ég tek þátt í þessu. Ég fékk mikið af góðum athugasemdum,“ segir Glúmur Baldvinsson, frambjóðandi Frjálslynda lýðræðisflokksins. 

Glúmur kom fram fyrir hönd flokksins í formannaumræðum RÚV í gærkvöldi. Frammistaða hans vakti nokkra athygli og jafnframt skapaðist töluverð umræða á samfélagsmiðlum um hvort að hann væri jafnvel drukkinn í útsendingunni.

Tómt kjaftæði

„Þetta er tómt kjaftæði, bara galið,“ segir Glúmur í dag, spurður hvort hann hafi verið drukkinn í sjónvarpssal.

„Heldur þú að það hefði ekki einhver tekið eftir því, það voru tugir manns þarna inni, ef maður hefði bara mætt ölvaður, já eða í glasi. Það kæmi ekki til greina og þetta er bara rugl. Tómt kjaftæði.“

Glúmur útskýrir að hann hafi ráfað aðeins um salinn vegna þess að hann er slæmur í mjóhryggnum. Hann segist ekki drekka áfengi.

Guðmundur Franklín hæstánægður 

Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrum forsetaframbjóðandi og stofnandi flokksins, segist ánægður með Glúm. 

„Ég var alveg sérstaklega ánægður með þetta. Þetta var frumraun hans fyrir framan alþjóð með þessum gömmum. Það er meira en að segja það standa svona í lappirnar í tvo tíma, hann er bakveikur.“

Eins og áður sagði skapaðist nokkur umræða í gærkvöldi, þar á meðal á Twitter: 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert