Ari Páll Karlsson
Stærstu stóðréttir landsins, Laufskálaréttir, fóru fram í dag. Atli Traustason, bóndi á Syðri-Hofdölum segir hana hafa farið vel fram en töluvert minna var um manninn en tíðkast að jafnaði.
„Já það var aðeins færra fólk, máttum ekki vera fleiri en 500. Þetta var ósköp friðsælt og rólegt. Í fyrra voru harðari fjöldatakmarkanir. Við vorum um 200 manns þá og 500 núna en í hitteðfyrra og árið þar á undan vorum við um þrjú þúsund,“ segir Atli.
„Reyndar gáleysi að hafa sett kjördag á okkar dag,“ segir hann, enda fyrstu réttirnar sem hitta á kjördag. Atli segist samt sem áður hafa náð að kjósa eftir réttirnar. „Já við skutumst.“
Og fóruð þið í ykkar fínasta pússi að kjósa?
„Nei nei nei, haugskítugir alveg.“