Hjálmar Bogi leiðir Framsókn í Norðurþingi

Hjálmar Bogi leiðir B-lista í Norðurþingi.
Hjálmar Bogi leiðir B-lista í Norðurþingi. Ljósmynd/Aðsend

Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri og kennari á Húsavík og fyrrum varaþingmaður, leiðir lista Framsóknar og félagshyggju í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 

Var tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista borinn upp til atkvæða á fjölmennum félagsfundi hjá Framsóknarfélagi Þingeyinga á laugardaginn. Tillagan var samþykkt samhljóða og hlaut mikið lof. 

Framsókn hlaut síðast þrjá fulltrúa af níu í sveitarstjórn Norðurþings og hefur starfað í minnihluta á kjörtímabilinu. 

Soffía Gísladóttir skipar annað sætið, hún er búsett í Lindarbrekku í Kelduhverfi og kemur ný inn á listann en hún þekkir svæðið vel sem forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi Eystra og Austurlandi og hefur einnig sinnt þingstörfum.

Eiður Pétursson, vélstjóri á Húsavík og starfar fyrir Landsvirkjun, skipar þriðja sætið. Hann er varafulltrúi framboðsins í dag og hefur setið í fjölskylduráði sveitarfélagsins á kjörtímabilinu.

Þar á eftir koma Bylgja Steingrímsdóttir, Eysteinn Heiðar Kristjánsson og Hanna Jóna Stefánsdóttir.

Listinn í heild sinni: 

1. Hjálmar Bogi Hafliðason, Húsavík

2. Soffía Gísladóttir, Kelduhverfi

3. Eiður Pétursson, Húsavík

4. Bylgja Steingrímsdóttir, Húsavík

5. Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Húsavík

6. Hanna Jóna Stefánsdóttir, Húsavík

7. Stefán Haukur Grímsson, Kópaskeri

8. Heiðar Hrafn Halldórsson, Húsavík

9. Brynja Rún Benediktsdóttir, Húsavík

10. Unnsteinn Ingi Júlíusson, Húsavík

11. Birna Björnsdóttir, Raufarhöfn

12. Aðalgeir Bjarnason, Húsavík

13. Guðlaug Anna Ívarsdóttir, Öxarfirði

14. Bergur Elías Ágústsson, Húsavík

15. Aðalheiður Þorgrímsdóttir, Reykjahverfi

16. Óskar Ásgeirsson, Húsavík

17. Unnur Erlingsdóttir, Húsavík

18. Kristján Kárason, Húsavík

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert