Meirihlutinn fallinn samkvæmt Þjóðarpúlsi

Horft yfir Reykjavík.
Horft yfir Reykjavík. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Núverandi meirihluti Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna og Viðreisnar í Reykjavík, er fallinn samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Samfylking mælist með sex borgarfulltrúa, Píratar þrjá, Viðreisn aðeins einn og Vinstri grænir áfram með einn fulltrúa. Alls ellefu fulltrúa en tólf þarf til að mynda meirihluta. 

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með sex fulltrúa, Framsókn með fjóra, Sósíalistaflokkurinn með einn og Flokkur fólksins með einn. Miðflokkurinn myndi ekki ná inn manni í borgarstjórn samkvæmt niðurstöðunni. 


 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert