„Við erum ennþá inni en ég þori aldrei að hrósa happi né ósigri fyrr en lokatölur liggja fyrir,“ segir Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, í samtali við mbl.is um fyrstu tölur úr Reykjavík.
Samkvæmt þeim heldur flokkurinn sínum eina manni inni.
Spurð hvort hún óttist að flokkurinn missi sinn eina mann segir Líf:
„Ég vona það besta en undirbý mig fyrir það versta.“
Þá segir Líf að skyldi það fara þannig að flokkurinn missi sinn eina borgarfulltrúa úr borgarstjórn þá verði það ekki gott fyrir femínisma, umhverfisvernd og félagslegt réttlæti.