Vörpuðu hlutkesti um fimmta sætið

Hlutkestinum varpað.
Hlutkestinum varpað.

Varpa þurfti hlutkesti um fimmta sæti aðalmanns í sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps í gær. Ástæðan var sú að tveir einstaklingar fengu jafn mörg atkvæði í fimmta sætið. 

Þetta kemur fram á íbúavef hreppsins.

Á kjörskrá voru 189 manns en alls greiddu 138 atkvæði og var kjörsókn því 73%.

„Auðir seðlar voru 5, engir seðlar voru ógildir. Atkvæði voru nokkuð dreifð og því tók talning nokkuð langan tíma. Varpa þurfi hlutkesti um fimmta sæti aðalmanns þar sem tveir einstaklingar fengu jafn mörg atkvæði sem fimmti aðalmaður.“

Aðalmenn eru Jóhann Örn Hreiðarsson með 72 atkvæði, Lilja Magnúsdóttir með 67 atkvæði, Jenný Lára Magnadóttir með 57 atkvæði, Guðlaugur Jónsson með 44 atkvæði og Jón Ingi Jónsson með 43 atkvæði. 

Varamenn eru Marinó Bjarnason, Magnús Óskar Hálfdánsson, Jónas Snæbjörnsson, Fjölnir Freysson og Guðlaug A. Björgvinsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert