BDSM-viðræðum slitið

Sunna Hlíf Jóhannesdóttir (B), Heimir Örn Árnason (D) og Hilda …
Sunna Hlíf Jóhannesdóttir (B), Heimir Örn Árnason (D) og Hilda Jana Gísladóttir (S), oddvitar í bæjarstjórnakosningum á Akureyri. Á myndina vantar Hlyn Jónsson, oddvita Miðflokksins.

Samfylkingin hefur slitið meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokk (B), Sjálfstæðisflokk (S), og Miðflokk (M) á Akureyri. RÚV greinir frá þessu. 

Í samtali við miðilinn segir Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingarinnar, að ástæða slitanna sé mikill málefnalegur ágreiningur í fjölmörgum málum. 

Áður hefur formlegum meirihlutaviðræðum verið slitið á Akureyri en þá voru það Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sem slitu viðræðum við Bæjarlistann.

Hilda Jana hefur ekki svarað símtölum frá mbl.is og það hafa oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á Akureyri ekki heldur gert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert