Tæknin orðin hluti af lífsstíl fólks

Nýherji

Rúmlega þriðjungur fyrirtækja mun á næstu tveimur árum veita starfsfólki sínu frelsi til að velja eigin tölvu- og símbúnað til vinnu í stað staðlaðs búnaðar eins og venja hefur verið í flestum fyrirtækjum. Fjallað verður um þessa þróun á ráðstefnu Nýherja, sem verður haldin á Akureyri, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Snæbjörn Ingólfsson, lausnasérfræðingur hjá Nýherja, segir í tilkynningunni að nú streymi á vinnumarkað starfsfólk sem margt geri kröfu til þess að velja eigin tölvubúnað og snjalltæki til vinnu, í stað þess að fá úthlutað tiltekið tæki.

„Greiningarfyrirtækið Gartner gerir ráð fyrir að 38% fyrirtækja muni hætta að afhenda starfsfólki staðlaðan búnað til vinnu árið 2016, en þetta á einkum við fyrirtæki í Bandaríkjunum. Þess í stað getur fólk valið þann búnað sem það kýs sér. Það er í takt við aukna vitund fólks gagnvart vörumerkjum og að tækni er orðin meiri hluti af lífsstíl fólks en áður,“ segir hann.

Öryggismál í forgrunni

Snæbjörn segir að þessar breytingar feli í sér að sífellt fleiri fyrirtæki hafa innleitt svokallaða „Bring Your Own Device-stefnu“ (BYOD) til þess að koma til móts við þarfir starfsfólks.

„Það er hins vegar ekki nóg að innleiða stefnu að þessu tagi. Öryggismál þurfa að vera í forgrunni. Komið hefur í ljós samkvæmt erlendum könnunum að þó að fyrirtæki innleiði BYOD stefnu hafi mörg þeirra ekki hugað að örygginu,“ segir Snæbjörn jafnframt og bendir á að í mörgum tilvikum séu tæki starfsfólk ekki skönnuð fyrir óværum né sé dulkóðun fyrir hendi.

Ráðstefna Nýherja, fer fram í Hofi á Akureyri 3. apríl næstkomandi, en þar verður fjallað um allt sem snýr að upplýsingatækni; öryggislausnir, umhverfisvænni prentun, útstöðvar og Windows 8.1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert