Óvissa um áhrif skýjalöggjafar

Margir Íslendingar nota iCloud frá bandaríska fyrirtækinu Apple.
Margir Íslendingar nota iCloud frá bandaríska fyrirtækinu Apple. AFP

Bæði Evrópska persónuverndarráðið og Evrópska persónuverndarstofnunin telja nauðsynlegt að farið sé yfir gildandi alþjóðasamninga Evrópusambandsins við Bandaríkin vegna skýjalöggjafar Bandaríkjanna.

Skýjalöggjöfin heimilar löggæsluyfirvöldum í Bandaríkjunum að krefjast afhendingar á gögnum þjónustuaðila sem staðsettir eru í Bandaríkjunum. Óvíst er hvaða afleiðingar skýjalöggjöfin hefur á Ísland en fjölmargir Íslendingar nýta sér bandaríska þjónustuaðila sem geyma gögn í svokölluðum „skýjum“ á netinu.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgnnblaðinu í dag segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, ólíklegt að bandarísk löggæsluyfirvöld geti nýtt skýjalöggjöfina til að nálgast íslensk gögn án heimildar en gefur sér að einhvers konar samkomulag sé í gildi við bandarísk stjórnvöld sem veiti slíka heimild.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert