443 milljónir í ljósleiðaravæðingu í dreifbýli

Styrkjum í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt var úthlutað í …
Styrkjum í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt var úthlutað í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í dag. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Haraldur Benediktsson, varaformaður fjarskiptasjóðs skrifuðu undir samninga við sveitarfélög og Neyðarlínuna. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti í dag úthlutun styrkja samtals að upphæð 443 milljóna króna til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli, sem veittir eru í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt á grundvelli fjárfestingarátaks ríkisstjórnarinnar. 

Styrkir til sveitarfélaga námu að þessu sinni samtals 317,5 milljónir kr. Einnig var samið við Neyðarlínuna sem fékk 125,5 milljónir króna til að leggja ljósleiðara og byggja upp fjarskiptainnviði utan markaðssvæða, að því er segir í frétt Stjórnarráðsins

Nýverið var samþykkt 400 milljóna króna viðbótarfjárveiting til fjarskiptasjóðs sem verja skal til verkefnisins og tengdrar innviðauppbyggingar. Fjárveitingin er liður í sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda fram á næsta vor, til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Þessu til viðbótar leggur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til 43 milljónir króna sem framlag úr byggðaáætlun.

„Við erum óðfluga að nálgast takmark okkar að leggja ljósleiðara um nánast allt dreifbýli landsins. Með viðbótarfjárveitingu í ár er unnt að flýta slíkum framkvæmdum enn frekar,“ er haft eftir Sigurði Inga í tilkynningu.

Alls var samið við 17 sveitarfélög um styrk úr fjarskiptasjóði en átta þeirra fá einnig úthlutað byggðastyrk úr byggðaáætlun stjórnvalda. Eitt sveitarfélag, Árneshreppur, fær styrk af byggðaáætlun.

Hér má sjá lista yfir sveitarfélögin og styrktarupphæð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert