Ný aðstaða til þjálfunar á Airbus

Sighvatur Bjarnason við herminn nýja. Hann hefur verið settur upp …
Sighvatur Bjarnason við herminn nýja. Hann hefur verið settur upp í skrifstofuhúsnæði í Garðabæ. Í honum má þjálfa á allar vélar Airbus sem tilheyra hinni svokölluðu A320-fjölskyldu. mbl.is/Árni Sæberg

„Hugmyndin að þessu fyrirtæki kviknaði í samtali mínu við góðan vin þegar við vorum að leita að einföldum búnaði fyrir flugæfingar á tölvu. Þá rákumst við á búnað frá þessu fyrirtæki og þetta vatt upp á sig.“ Þessum orðum fer Sighvatur Bjarnason flugstjóri um tilurð fyrirtækisins CoM Flight Revisions sem hann hefur sett á laggirnar í félagi við tvo fjárfesta, feðgana Guðmund Má Ástþórsson og Ástþór Reyni. Sighvatur á að baki langan feril sem flugstjóri á ýmsar gerðir Airbus-farþegaþotna en hann var í hópi fyrstu flugmanna sem flugu undir merkjum WOW air og var flugstjóri hjá félaginu allt þar til yfir lauk.

„Ég tel að það séu um 100 Íslendingar sem hafi próf á Airbus og í dag eru varla fleiri en 15 þeirra starfandi við fagið. Það lamaðist allt við útbreiðslu kórónuveirunnar,“ segir Sighvatur en hann hafði ráðið sig til starfa sem flugstjóri hjá Air Atlanta eftir fall WOW air en fyrrnefnda félagið hafði þá á prjónunum að taka í gagnið A330-breiðþotur sem m.a. átti að nota í pílagrímaflugi í arabaheiminum.

Að mati Sighvats er þörf fyrir búnað af þessu tagi fyrir flugmenn til að halda sér við og þá gefi þessi aðstaða einnig tækifæri fyrir þá sem eru að afla sér réttinda.

„Flugið fer í fullan gang að nýju og þá verður þörf fyrir fólk með réttindi á þessar vélar. Í einhverjum tilvikum þarf fólk að endurnýja réttindin en aðrir hafa haldið þeim við og þessi búnaður getur komið að góðum notum fyrir báða hópa.“ Sighvatur bendir á að ekki sé hægt að afla réttinda á herminn sem CoM hefur sett upp, til þess þarf búnað af öðru og stærra tagi en þessi hermir gerir þó allt sem þarf til þess að fá góða æfingu á þær vélar sem tilheyra A320-fjölskyldunni svokölluðu en það eru A318-, A319-, A320- og A321-vélar úr smiðju Airbus. Fyrr í þessari viku var greint frá því að flugfélagið Play hygðist taka í notkun A321-NEO-vélar um mitt sumar. Sighvatur segir að ákveðið hafi verið að ráðast í stofnun CoM áður en það lá fyrir og að grundvöllur fyrirtækisins byggi ekki á mögulegum umsvifum Play, þótt þau feli í sér mjög jákvæð tíðindi.

„Þessi starfsemi getur án efa nýst Play en við teljum rekstrargrundvöll fyrir þessari þjónustu óháðan því. Það felst mikil fjárfesting í því fyrir öll flugfélög að þjálfa upp sínar áhafnir og það getur sparað stórfé að nýta búnað eins og þennan til undirbúnings áður en áhafnir halda út í mun dýrari herma.“

Sighvatur er með þjálfunarréttindi frá Airbus og segir að jöfnum höndum muni flugmenn geta leigt herminn til eigin æfinga en einnig sótt leiðsögn til hans. Tæknin gefur færi á því að prófa menn í alls konar aðstæðum og á öllum flugvöllum heimsins sem tjáir að nefna.

„Þjónustan er enn í mótun og við erum að leggja mat á eftirspurnina þessa dagana. Hér sjáum við m.a. fyrir okkur að geta tekið á móti ungu fólki sem er að velta fyrir sér hvort það eigi að leggja flugið fyrir sig sem og öllu áhugafólki.“

Það er svissneskt fyrirtæki sem hannar og smíðar búnaðinn en ýmsir hlutar hans eru sóttir til stórfyrirtækja á borð við Lockheed-Martin. Þegar stofnendur CoM eru spurðir út í fjárfestinguna sem liggur að baki búnaðinum er Guðmundur Már til svars. Hann dregur augað í pung og gefur lítið annað uppi en þetta:

„Þetta kostar tugi milljóna.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert