Fyrsti sjálfvirki lyfjaskammtarinn afhentur

Teymið sem vann að innleiðingu lyfjaskammtaranna. Efri röð frá vinstri: …
Teymið sem vann að innleiðingu lyfjaskammtaranna. Efri röð frá vinstri: Sigríður María, Linda, Dagny, Eetu. Neðri röð frá vinstri: Þorbjörg, Kristín, Helga Dagný. Ljósmynd/Aðsend

Icepharma, dótturfélag Ósa ásamt Reykjavíkurborg hafa afhent fyrstu sjálfvirku lyfjaskammtarana frá Evondos til íbúa í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icepharma.

Nýtist einkar vel í fjarheilbrigðisþjónustu

Um er að ræða samvinnuverkefni milli Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Icepharma um innleiðingu á 25 sjálfvirkum lyfjaskömmturum á heimilum skjólstæðinga Velferðarsviðs.

Lyfjaskammtarar eru byltingarkennd velferðartækni sem nýtist einkar vel í fjarheilbrigðisþjónustu. Tilkoma þeirra hér á landi styður enn frekar við sjálfstæða og lengri búsetu fólks í heimahúsum, bætir gæði þjónustunnar, eykur skilvirkni og tryggir einstaklingum örugga og rétta lyfjagjöf á tilsettum tíma,“ segir í tilkynningunni.

Stefanía Valentínusardóttir, 89 ára er fyrsti einstaklingurinn til að fá …
Stefanía Valentínusardóttir, 89 ára er fyrsti einstaklingurinn til að fá sjálfvirkan lyfjaskammtara heim til sín. Ljósmynd/Aðsend

Hægt að spyrja um líðan fólks í gegnum tækið

Sjálfvirku lyfjaskammtararnir frá Evondos munu þjóna íbúum Reykjavíkurborgar sem búa heima en þurfa daglega eða oftar aðstoð og eftirfylgni við lyfjtainntöku. Í lyfjaskammtarann eru settar hefðbundnar lyfjarúllur og les tækið þær upplýsingar sem fram koma á hverjum lyfjapoka og skammtar réttum lyfjum á réttum tíma. Lyfjaskammtarinn er með bæði texta- og raddleiðbeiningum á íslensku, sem styður enn betur við meðferðarheldni.

Hægt er að senda persónuleg skilaboð inn í lyfjaskamtarann, t.d. til að minna viðkomandi á að hann þurfi að nærast eða drekka á ákveðnum tímum og/eða að viðkomandi eigi von á heimavitjun. Einnig er hægt að spyrja um líðan sem einstaklingurinn svarar síðan í gegnum lyfjaskammtarann. Ef einstaklingur gleymir að taka lyfin innan ákveðins tímaramma koma skilaboð eða viðvaranir í miðlægt kerfi svo heimaþjónustan getur brugðist strax við.

Stuðlar að því að fólk getur búið lengur heima 

Lyfjaskammtarinn er frá finnska fyrirtækinu Evondos og þjónustar það í dag um 200 heilbrigðisumdæmi á Norðurlöndunum. Evondos er með fjarvöktun á öllum sínum lyfjaskömmturum allan sólarhringinn, allan ársins hring og jafnframt sér Icepharma um þjónustu og viðhald hér á landi.

„Mikil nýsköpun á sér stað í velferðartækni og lausnum sem stuðla að því að fólk getur búið lengur heima hjá sér í öryggi og með þjónustu sem er þeim mikilvæg. Sjálfvirki lyfjaskammtarinn er gott dæmi um slíka lausn og framundan er hröð þróun í notkun velferðartækni við hönnun íbúða fyrir þá sem þurfa á þjónustu að halda,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert