Ísland í 5. sæti í stafrænni þjónustu

Enn hækkar Ísland í alþjóðlegum samanburði er litið er til …
Enn hækkar Ísland í alþjóðlegum samanburði er litið er til stafrænnar opinberrar þjónustu og innviða. AFP

Enn hækkar Ísland í alþjóðlegum samanburði er litið er til stafrænnar opinberrar þjónustu og innviða. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins þar sem enn fremur er greint frá því að í nýrri úttekt Sameinuðu þjóðanna, sem sem gerð er annað hvert ár, skipi Ísland nú fimmta sætið af 193 löndum sem er hækkun úr tólfta sæti árið 2020. Af tíu efstu löndum tekur Ísland stærsta stökkið milli kannana.

„Í úttekt SÞ er er skoðað hversu vel ríkin standa að stafrænni þjónustu (Online Service Index), hugviti (Human Capital Index) og tæknilegum innviðum (Telecommunication Infrastructure Index). Hugvit og tæknilegir innviðir eru þeir þættir sem skila Íslandi 5. Sætinu,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Ísland verði leiðandi í stafrænni þjónustu

Segir þar einnig að búast megi við að Ísland hækki áfram í frammistöðunni er kemur að stafrænni opinberri þjónustu. Mikil áhersla sé nú lögð á stafvæðingu þjónustunnar sem feli í sér að hún verði að öllu aðgengileg á lýðnetinu í formi alls í senn, umsóknar, greiðslu og kvittunar fyrir þjónustu.

„Ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið að Ísland verði leiðandi í opinberri stafrænni þjónustu og sýna kannanir að vinnunni miðar vel áfram. Stafræn þjónusta er þegar farin að einfalda líf fólks, spara tíma á sama tíma og þjónustan batnar,“ segir þá í tilkynningunni en þar er einnig vitnað í Bjarna Benediktsson, ráðherra málaflokksins.

„Það er frábært að sjá mikla vinnu síðustu ára skila árangri. Við erum nú komin í hóp fimm öflugustu ríkja heims á þessu sviði, hvort sem horft er til úttektar SÞ eða ESB. Markmiðið er að ná enn lengra og leiða keppnina á heimsvísu. Við höfum alla burði til þess ef við höldum áfram uppteknum hætti,“ er haft eftir ráðherra.

Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, lætur hins vegar hafa eftir sér að úttektin sé staðfesting á því að stafræn opinber þjónusta á Íslandi sé komin í fremstu röð í heiminum. „Það er okkur teyminu hvatning að sjá vinnu okkar skila árangri og eflir okkur í áframhaldandi þróun,“ segir Andri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert