Kolsvart töffaraeldhús með marmara

Stílhreint og ákaflega fallegt. Ljósið nýtur sín vel og takið …
Stílhreint og ákaflega fallegt. Ljósið nýtur sín vel og takið eftir innfelldu lýsingunni undir efri skápunum. Eggert Jóhannesson

Það alheitasta þessi dægrin í eldhúshönnun sameinast hér í þessu snilldareldhúsi. Eigandinn er smekkmaður af betri gerðinni eins og sjá má á myndunum. Hér gefur að líta kolsvarta og matta eldhússkápa með marmaraplötu en takið eftir því hvað marmarinn er munstraður og fagur.

Öll heimilistæki eru svört sem er sérstaklega vinsælt um þessar mundir og verður næstu misseri.

Við erum að elska hvað þetta er stílhreint og fagurt eldhús þar sem fallegar línur og hönnun fær sín notið.

Blöndunartækin eru svört.
Blöndunartækin eru svört. Eggert Jóhannesson
Það kemur virkilega vel út að láta marmarann ná upp …
Það kemur virkilega vel út að láta marmarann ná upp að efri skápum. Eggert Jóhannesson
Listaverkin á veggjunum smellpassa inn.
Listaverkin á veggjunum smellpassa inn. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert