Stundum leyfa fjárráðin ekki að splæst sé í nýtt eldhús með öllu tilheyrandi og þá eru góð ráð dýr... eða ekki. Það er nefnilega til töfraefni sem getur bókstaflega umbreytt ljótu í fagurt, eða því sem næst.
Hér gefur að líta eldhús sem mögulega þótti fremur smart á sínum yngri árum en hefur ekki elst vel. Eigandinn hafði þó ekki efni til að skipta um eldhús og brá því á það ráð að fjárfesta í töfraefninu málningu og útkoman er ótrúleg.
Á neðri skápana var settur dökkgrænn litur sem er hámóðins þessi misserin og kemur virkilega vel út. Efri skáparnir eru síðan málaðir hvítir sem léttir verulega á eldhúsinu.
Síðan var skipt um höldur en það sem merkilegast þykir er hvað flísarnar og eldhúsbekkurinn sjást minna eftir að skáparnir voru málaðir.
Svona má redda sér með málningu, gott fólk.