Ljósmóðirin mín benti mér snemma á, á minni fyrstu meðgöngu að vatnsmelónur væru vinir óléttra kvenna ef bjúgur gerði vart við sig. Ég slapp blessunarlega við bjúginn en ást mín á vatnsmelónum dafnaði og óx.
Nú þegar ég er komin 6 mánuði á leið með mitt annað barn er vatnsmelónuæðið byrjað aftur. Þetta salat er sérstaklega í uppáhaldi hvort sem er sem millimál, með grillmat eða nánast hverju sem er. Hugmyndina fékk ég hjá Lucasi Keller yfirmatreislumanni og eiganda The Coocoo's Nest. Hann setur þó yfirleitt ferskt chillí í stað bláberja.
Öllu blandað saman og límónusaginn kreistur yfir.