Dásamleg tómatbaka með mozzarella og basilikum

Gómsæt baka með litríkum tómötum, mozzarella og basilikum.
Gómsæt baka með litríkum tómötum, mozzarella og basilikum. mbl.is/Betina Hastoft

Það er eitthvað við bökur sem er bara svo ljúffengt, sérstaklega þegar hráefnið er að „tala saman“. Þessi er auðgerð með fullt af ferskum tómötum, mozzarella-osti og basilikum.

Tómatbaka með mozzarella og basilikum (fyrir 4)

Tertudeig:

  • 100 g smjör
  • 175 g hveiti
  • 1 dl sesamfræ
  • ¼ tsk. salt
  • 1 eggjarauða
  • 1 msk. kalt vatn
  • Fylling:

    • 2 dl mascarpone eða sýrður rjómi
    • ¾ tsk. salt
    • Pipar
    • 300 g cherry-tómatar, fallegt að hafa blandaða liti
    • 150 g míni mozzarella
    • Fersk basilika
    • 2 msk. ólífuolía
    • Salt og pipar

    Aðferð:

    1. Skerið smjörið í litla teninga. Klípið smjörið saman við hveitið ásamt sesamfræunum og saltinu, þar til þetta líkist rifnum osti. Bætið þá eggjarauðu og vatni saman við. Leyfið deiginu að hvíla í 30 mínútur inni í ísskáp.
    2. Smyrjið tertuform og klæðið formið að innan (sirka 26 cm form). Bakið botninn í ca. 20 mínútur við 180°, þar til það verður gyllt og bakað í gegn. Leyfið botninum að kólna.
    3. Kryddið mascarpone-ostinn með salti og pipar og smyrjið honum á tertubotninn. Skerið tómatana til helminga og dreifið yfir ásamt mozzarella-ostinum og basilikunni til síðast. Dreypið smá ólífuolíu og saltið og piprið eftir smekk.
    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert