Kallar pastabumbuna nafni og segir hana sparka

AFP

Við segjum ykkur áfram fegnir af Meghan Markle enda lumar hún á ansi góðum ráðum sem tengjast mataræði og áhrifum þess á húðina. 

Markle segir að þrátt fyrir að hún elski gott pasta þá reyni hún að forðast það eins og hún geti – nema þegar hún ferðast. Þegar ég ferðast nýti ég hvert tækifæri til að prófa girnilegt pasta. „Á hverju ári kem ég til baka með veglega matarbumbu sem ég kalla "comida" [sem þýðir máltíð á spænsku. Innsk. blm.] Ég mæti á tökustað og tilkynni stolt að Comida sé mætt og að hún sé að sparka.“

Hvort að þessi venja Markle hafi breyst eftir að hún varð hluti af bresku konungsfjölskyldunni skal ósagt látið en ljóst er að reglurnar eru aðeins strangari þar á bæ. 

Annars forðast Markle glútein eins og heitan eld þar sem hún segist sjá gríðarlegan mun á húð sinni. Húðin sé miklu fallegri þegar hún sé eingöngu á glúteinlausu fæði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert