Royalistar hafa loks fundið sinn samastað

Veitingarnar eru bornar fram á þriggja hæða bakka sem er …
Veitingarnar eru bornar fram á þriggja hæða bakka sem er sérlega glæsilegur. mbl.is/Apótek

Sá siður að drekka síðdegiste á rætur sínar að rekja til Bretlands um miðja 19. öld og upphaflega hugmyndin var að þetta væri nokkurs konar smámáltíð sem myndi slá á sárasta hungrið á milli hádegis- og kvöldverðar. Áður fyrr buðu fínar dömur öðrum fínum dömum til síðdegistes á heimilum sínum og þegar Viktoría drottning tók þennan sið upp á arma sér varð hann einn útbreiddari. Í dag fara Bretar gjarnan í síðdegiste við hátíðleg tilefni, eins og t.d. á afmælum og öðrum slíkum tímamótum, oft á glæsihótelum og hefur siðurinn breiðst út víða.

Og nú til Íslands, en Apótek hóf nýverið að bjóða upp á síðdegiste og hefur það mælst einkar vel fyrir. Teið er í boði á milli klukkan 14.30 og 17, þá tekur Happy Hour við og alveg kjörið að ljúka herlegheitunum með eins og einum kokkteil.

Hægt er að drekka te með eins og tíðkast eða …
Hægt er að drekka te með eins og tíðkast eða fá sér freyðivín eða kampavín. mbl.is/Apótek

Matarvefurinn fékk tvo valinkunna sælkera til að heimsækja Apótek og taka síðdegisteið út. Téðir sælkerar hafa ýmsa fjöruna (eða ýmsan tebollann) sopið og hafa það fyrir sið þegar þeir fara til London að heimsækja eitt af þeim fjölmörgu glæsihótelum þar í borg sem bjóða upp á síðdegiste.

Það voru því fagmenn sem settust að snæðingi á Apóteki síðdegi eitt í síðustu viku.

Hver getur staðist svona huggulegheit?
Hver getur staðist svona huggulegheit?

Með íslenskum keim

Síðdegisteið á Apóteki er borið fram á sígildan hátt, á þriggja hæða tertudiski þar sem sætmetið trónir á efsta diski og svo er það salta og kryddaða á þeim neðri. En framsetningin er hér um bil það eina sem er hefðbundið, því að hér er sannarlega verið að fara nýjar og spennandi leiðir. Líklega væri nær að kalla þetta íslenskt síðdegiste en ekki breskt.

Rauðu eplin minna helst á ævintýrið um Mjallhvíti.
Rauðu eplin minna helst á ævintýrið um Mjallhvíti.

Á neðri diskunum tveimur mátti finna samlokur með túnfisksalati og sýrðum gúrkum (að sjálfsögðu var brauðið hvítt og skorið í litla þríhyrninga), þar var reykt bleikja með reyktum rjómaosti á bústinni belgískri vöfflu (osturinn er reyktur á veitingastaðnum), hægelduð lambaöxl með gulrótum og gerjuðum hvítlauk sem var líka á vöfflu og svo anda-confit, karamelluð ferskja, epli og maltsósa sömuleiðis á belgískri vöfflu.

Að auki voru á hliðardiski bláberjaskonsur með hleyptum rjóma (e. clotted cream) og tvær tegundir af ávaxtamauki, jarðarberja og appelsínu.

Eiturgrænn kokteill að hætti Apóteksins.
Eiturgrænn kokteill að hætti Apóteksins.

Eins og hefðin býður hófu matgæðingarnir veisluna á því að borða skonsurnar og það sem var á neðri diskunum og var það samróma álit þeirra að það sem það var að finna væri hvað öðru betra. Vöfflurnar með þremur mismunandi fyllingum voru hver annarri betri, lambaöxlin kom verulega á óvart þar sem kryddað kjötið spilaði skemmtilega með sætri vöfflunni. Þá var bleikjan virkilega bragðgóð, léttreykt og lítið söltuð og reykti rjómaosturinn setti punktinn yfir i-ið. Skonsurnar voru léttar og bragðgóðar, þrungnar safaríkum bláberjum og augljóslega nýbakaðar.

Dýrindis snittur.
Dýrindis snittur.

Stófengleg kirsuberjakaka

Og svo var það sætmetið. Á efstu hæð tertudisksins góða voru Sumarsæla, sem er kókosmús á kókosmarengsbotni með mangókremi, súkkulaðimús og hvítsúkkulaði-ganache, karamellu-crankie sem samanstendur af karamelluköku og karamellumús á pistasíubotni og Cherry delight, sem er kaka í líki stórs kirsubers á hvítsúkkulaðikexbotni með kirsuberjamús og kirsuberjafyllingu. Allt var þetta sérstaklega fallegt og bragðið var ekki síðra. Kókosfyllingin í Sumarsælunni var sérlega létt og tónaði vel við mangókremið, karamellu-crankie kakan var með höfugu karamellubragði án þess að vera of sæt. En vinninginn í sætmetissamkeppninni fær kirsuberjakakan Cherry delight, sem uppfyllti allar þær kröfur sem gera má til köku; súrt kirsuberjabragðið féll einkar vel að sætum hvítsúkkulaðibotninum þannig að úr varð hreinasta sælgæti.

Brauðmetið var líka í boði.
Brauðmetið var líka í boði.

Kampavínið skemmir ekki

Eins og fram kom hér að framan er síðdegiste Apóteksins frumlegt og öðruvísi og það er fyrst og fremst vegna þess að þar er verið að nota hráefni sem er ekki vanalegt í síðdegistei, eins og t.d. lambakjöt og önd. Máltíðin verður þannig nokkuð matarmeiri en gerist og gengur með hefðbundið síðdegiste og það er því í góðu lagi að mæta svangur á staðinn.

Með þessu var að sjálfsögðu boðið upp á te og var hægt að velja á milli fjögurra tegunda. Matgæðingarnir tveir völdu sér Earl Grey með blóðbergi og magnolíute og mæltist hvorttveggja vel fyrir. Einnig er hægt að bæta glasi af Cava-freyðivíni eða Bollinger Special Cuvée-kampavíni við fyrir aukagjald og mæla útsendarar Matarvefsins heilshugar með kampavíninu.

Það gerir annars góða upplifun enn betri!

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert