Morgunverður nautnaseggsins

Morgunverður sem rífur þig í gang!
Morgunverður sem rífur þig í gang! mbl.is/SpoonForkBacon

Værum við ekki öll til í svona kombó í morgunmat – ristað brauð með beikoni, eggjahræru og pestó? Við erum nokkuð viss um að bara ilmurinn myndi draga okkur fram úr rúminu.

Morgunverður nautnaseggsins (fyrir 2)

Pestó:

  • Stórt hvítlauksrif
  • 2 fullar msk. hakkaðar valhnetur
  • 120 g fersk basilika
  • ¼ ólífuolía (meira ef þörf er á)
  • 35 g parmesan ostur
  • Salt og pipar
  • 2 msk. mjúkt smjör
  • 4 stór egg
  • 3 msk. nýmjólk
  • Salt og pipar
  • 4 beikonstrimlar
  • 2 þykkar súrdeigsbrauðsneiðar

Aðferð:

  1. Pesto: Setjið hvítlauk og hnetur í matvinnsluvél og hakkið vel í litla bita. Bætið við basiliku og 2 msk. af olíu og haldið áfram að hakka. Bætið þá restinni af ólífuolíunni við og blandið saman. Saltið, piprið og bætið parmesan-ostinum út í.
  2. Steikið beikonið á pönnu og leyfið fitunni að leka af á pappír.
  3. Hitið smjör á pönnu. Brjótið eggin í skál og pískið léttilega. Hellið eggjunum á pönnuna og hrærið í með sleif í 3-5 mínútur. Takið þá pönnuna af hellunni.
  4. Ristið brauðið og smyrjið. Leggið beikonsneiðar á brauðin og eggjahræruna þar ofan á. Saltið, piprið og toppið með pestó.
Þessi kona er greinilega glorsoltin og langar í morgunverð.
Þessi kona er greinilega glorsoltin og langar í morgunverð. Ljósmynd / Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert