Guðrún Sóley gefur út matreiðslubók

mbl.is/Rut Sigurðardóttir

Fjölmiðlakonan Guðrún Sóley Gestsdóttir gefur út sína fyrstu matreiðslubók hjá bókaútgáfunni Sölku fyrir jólin. Bókin ber heitið Grænkerakrásir Guðrúnar Sóleyjar: vegan uppskriftir fyrir mannúðleg matargöt og inniheldur, eins og titillinn gefur til kynna, eingöngu vegan uppskriftir.

Guðrún Sóley hefur alla tíð verið matargat og sælkeri sem veit fátt betra en að borða góðan mat, helst með mikilli sósu, í góðum félagsskap. Fyrir nokkrum árum ákvað hún að stíga skrefið til fulls og verða alfarið vegan. Þá hófst nýr kafli sem sneri að því að fóta sig með ný hráefni og nýjar forsendur í matargerð.

„Sá kafli stendur enn yfir og er eitt skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekist á við,“ segir Guðrún Sóley og bætir við: „Heill heimur opnaðist fyrir mér og ég trúði varla möguleikunum sem öll þessi hráefni bjóða upp á; kryddin, ferska grænmetið, baunirnar, ávextirnir, jurtirnar, hneturnar, fræin. Pastað! Pizzurnar! Hamborgararnir! Kökurnar, kruðeríið og sælgætið. Og sósurnar – maður lifandi, sósurnar!“

Veganismi er ekki tiltekið mataræði, hann er ekki meinlætastefna og allra síst megrun. Hann er hugmyndafræði sem miðar að því að binda endi á kerfisbundið ofbeldi gegn dýrum, taka skilvirk og risastór skref í átt að umhverfisvernd og tryggja okkur hreysti, vellíðan og hamingju.

„Hver einasta máltíð sem ég borða er litrík, bragðmikil og stútfull af vítamínum og góðri næringu. Ég neita að borða leiðinlegan mat, til þess er lífið of stutt,“ segir Guðrún Sóley og hlær.

„Þess vegna einsetti ég mér að setja saman uppskriftir sem eru VEGAN og fullar af fjöri, kryddi og djúsi. Þær ættu að gagnast öllum, hvort sem markmiðið er að borða örlítið meira grænt, prófa kjötlausan dag eða geta boðið veganistanum í fjölskyldunni upp á eitthvað gómsætt í matarboðum.“

Grænkerakrásir Guðrúnar Sóleyjar kemur út um miðjan nóvember og inniheldur hátt í 100 vegan uppskriftir að morgunmat, bröns, hádegisverði, kvöldmat, snarli, smáréttum og nesti, eftirréttum og drykkjum. Gullfallegar ljósmyndir Rutar Sigurðardóttur prýða bókina.

Guðrún Sóley Gestsdóttir gefur út snilldarbók fyrir jólin.
Guðrún Sóley Gestsdóttir gefur út snilldarbók fyrir jólin. mbl.is/Rut Sigurðardóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert