Brikk opnar á Mýrargötunni

Brikk í Hafnarfirði.
Brikk í Hafnarfirði. mbl.is/Facebook

Þær gleðifregnir berast að hafnfirska bakaríið Brikk muni opna á Mýrargötunni á næstunni. Brikk opnaði á Strandgötu í Hafnarfirði í fyrra og hefur notið mikilla vinsælda. 

Davíð Magnússon, annar eigenda Brikk, staðfesti fréttirnar í samtali við Matarvefinn og sagði að stefnt væri að opnun eftir einn og hálfan mánuð eða svo. 

„Svo erum við að opna vinnslubakarí í Hafnarfirði sem mun þjónusta bæði bakaríin,“ bætir hann við en í því er mikil hagræðing fólgin. 

Það eru því spennandi tímar fram undan og gróskan í brauðbransanum mikil. Aðspurður hvort brauðeinvígi væri í vændum við Brauð & co, sem hafa komið sér kirfilega fyrir í mið- og Vesturbænum, sagði Davíð að svo væri alls ekki. Það væru allir vinir en aðdáendur beggja bakaría þekkja vel þær nýungar sem boðið er upp á sem útskýrir af hverju þessi bakarí eru svona óskaplega vinsæl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert