Besti 15 mínútna rétturinn

Þegar þú hefur engan tíma til að elda er þetta …
Þegar þú hefur engan tíma til að elda er þetta rétturinn fyrir þig. mbl.is/VK Stock

Á annasömum dögum er gott að geta reitt fram úr hendinni einn frábæran rétt á 15 mínútum. Við bjóðum ykkur upp á mjúkt spaghetti með stökku brokkolí og ansjósum sem gefa réttinum þetta ómótstæðilega bragð sem enginn stenst.

Besti 15 mínútna rétturinn

  • 400 g spaghettí
  • ½ brokkolí, skorið í litla bita
  • 2 stórir hvítlaukar
  • ½ tsk. chili
  • 4 ansjósur í olíu
  • ½ dl ólífuolía
  • 1 skallottlaukur
  • 1 dl þurrt hvítvín
  • 100 g ferskur parmesan-ostur
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum. Þegar það er næstum tilbúið, setjið þá brokkolíbitana út í í 1-2 mínútur.
  2. Merjið hvítlaukinn, chili og ansjósur í morteli. Setjið olíu á pönnu og steikið laukinn þar til hann er gylltur, bætið þá ansjósublöndunni út í og hrærið í.
  3. Bætið hvítvíni á pönnuna og leyfið því að sjóða upp.
  4. Setjið pastað og brokkolíið út á pönnuna og veltið upp úr blöndunni.
  5. Setjið aðeins meiri olíu ef þarf og saltið og piprið.
  6. Dreifið osti yfir og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert