Hrísgrjón sem gera allar máltíðir betri

Steikt hrísgrjón í suðrænni sveiflu.
Steikt hrísgrjón í suðrænni sveiflu. mbl.is/Parker Feierbach

Það má alveg leiða hugann að suðrænni strönd á árstíma sem þessum, þessi réttur ætti að fleyta okkur hálfa leið í það minnsta. Steikt hrísgrjón með ananas, hnetum og fullt af öðrum bragðgóðum innihaldsefnum, gjörið svo vel.

Suðræn hrísgrjónablanda

  • 2 msk. kókosolía
  • 1 meðalstór laukur, saxaður
  • 1 rauð paprika, skorin í litla bita
  • 1 bolli ferskur ananas, skorinn í litla bita
  • 3 hvítlauksrif, marin
  • ¼ bolli kasjúhnetur, saxaðar
  • 3 bollar soðin hrísgrjón
  • ½ bolli grænar baunir, þíddar
  • Safi úr 1 lime
  • 2 msk. sojasósa
  • 1 tsk. Sriracha
  • 2 stór egg
  • 2 vorlaukar, skornir í þunnar sneiðar

Aðferð:

  1. Hitið kókosolíu á pönnu á meðal hita. Bætið lauk, papriku og ananas á pönnuna og steikið þar til ananasinn hefur brúnast, sirka 5 mínútur. Bætið þá við hvítlauk og kasjúhnetum og steikið áfram í 1 mínútu.
  2. Setjið tilbúnu hrísgrjónin á pönnuna ásamt baunum, lime safa, sojasósu og Sriracha – 3 mínútur í viðbót.
  3. Ýtið hrísgrjónablöndunni til hliðar á pönnunni og steikið eggin – hrærið í þeim stanslaust og blandið svo við hrísgrjónin.
  4. Dreifið vorlauk yfir og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert