Saltkaramellukaka með rjómaostakremi

Fallegar kökur standa ávallt fyrir sínu og prýða hvaða veisluborð …
Fallegar kökur standa ávallt fyrir sínu og prýða hvaða veisluborð sem er. Hér erum við með meistarastykki úr smiðju Lindu Ben en hér leikur hún sér með saltkaramellubragðið sem kemur ótrúlega vel út. mbl.is/Linda Ben

Fallegar kökur standa ávallt fyrir sínu og prýða hvaða veisluborð sem er. Hér erum við með meistarastykki úr smiðju Lindu Ben en hér leikur hún sér með saltkarmellubragðið sem kemur ótrúlega vel út.

Krem sem innihalda rjómaost eru ekki jafn sæt og gera kökuna enn þá betri en hefðbundin sykurkrem myndu gera. Að auki er kakan sérlega falleg en til að gera svona súkkulaðiskreytingar eins og Linda hefur gert þarf að hita upp hjúpsúkkulaði og dreifa því á smjörpappír og kæla svo. Einfalt en gerir kökuna nánast konunglega í útliti.

mbl.is/Linda Ben

Saltkaramellukaka með rjómaostakremi

  • 220 g ósaltað smjör við stofuhita
  • 400 g sykur
  • 300 g púðursykur
  • 6 egg
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 480 g hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 340 ml mjólk

Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 180°C, undir- og yfirhita.
  2. Þeytið smjörið og sykurinn þar til blandan verður létt og loftmikil.
  3. Bætið eggjunum út í, einu í einu.
  4. Bætið vanilludropunum saman við.
  5. Blandið saman hveiti og lyftidufti. Bætið hveitinu út í blönduna ásamt mjólkinni í nokkrum skrefum, hrærið á milli en eins lítið og hægt er.
  6. Skiptið deiginu í þrjú 20 cm smelluform sem hafa verið smurð vel. Bakið í u.þ.b. 30-40 mín. eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn. Kælið kökurnar alveg áður en kremið er sett á.

Saltkaramella

  • 200 g sykur
  • 100 g smjör
  • 1 dl rjómi
  • 1 tsk. salt

Aðferð:

  1. Sykurinn er bræddur í stórum potti við lágan hita.
  2. Smjörið er skorið í 6 bita og einn biti settur út í sykurinn í einu og hrært vel á milli, lækkið hitann.
  3. Rjómanum er hellt út á sykurblönduna í litlum skömmtum og hrært vel á milli.
  4. Setjið saltið út í karamelluna og hrærið vel. Hellið karamellunni í eldfast mót á hitaplatta. Alls ekki smakka karamelluna fyrr en hún hefur kólnað vel.

Rjómaostakrem

  • 500 g smjör við stofuhita
  • 500 g rjómaostur við stofuhita
  • 1.000 g flórsykur
  • 2-3 msk. saltkaramella (við stofuhita), fer eftir smekk
  • 200 g hvítt súkkulaði
  • Súkkulaðikúlur til að skreyta með

Aðferð:

  1. Þeytið smjörið vel þar til það verður létt og loftmikið, bætið rjómaostinum út í og þeytið vel.
  2. Bætið flórsykrinum út í rólega og þeytið vel saman við þar til kremið verður loftmikið. Bætið því næst saltkaramellunni út í og þeytið hana vel saman við.
  3. Skerið harða toppinn af hverjum kökubotni svo botnarnir séu alveg sléttir. Setjið fyrsta botninn á kökudisk.
  4. Skiptið kreminu í 4 hluta. Setjið 1 hluta á fyrsta kökubotninn, sléttið úr kreminu. Setjið næsta kökubotn og annan hluta af kreminu, sléttið. Setjið þriðja kökubotninn á og hyljið kökuna með restinni af kreminu, sléttið vel úr kreminu.
  5. Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði, sléttið úr smjörpappír á borð, setjið 1 msk. af hvítu súkkulaði á smjörpappírinn og dragið hvíta súkkulaðið út með skeiðinni, endurtakið 20 sinnum. Leyfið súkkulaðinu að storkna vel. Fjarlægið súkkulaðið varlega af smjörpappírnum þegar það hefur storknað. Raðið því á kökuna fremst 9 stk. saman og svo 3 stk. saman á þremur stöðum á kökunni. Raðið súkkulaðikúlum efst á kökuna og meðfram kökudiskinum. Skreytið kökuna með fersku brúðarslöri (má sleppa).
mbl.is/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert