Af hverju eru rafmagnstannburstar nauðsynlegir?

mbl.is

Rafmagnstannburstar eru ekki bara til að bursta tennurnar. Þannig er nefnilega mál með vexti að hægt er að nota þá til annarra verka en bara til að bursta tennurnar. 

Þeir eru nefnilega algjör snilld þegar kemur að því að þrífa flísafúgur! Nú kviknar ábyggilega á nokkrum perum en í stað þess að nota tannbursta (eins og við erum alltaf að ráðleggja ykkur) þá skulið þið prófa að nota rafmagnstannbursta (sérstaklega þegar þið eruð hætt að nenna að nota hann) til þess að þrífa baðherbergið. 

Klikkar ekki og þið verðið hæstánægð með lífið (og baðherbergið!)

Getty images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert