Geggjaðar nýjungar frá Stelton

Sumarlegur litur á nýjungunum frá RIG-TIG.
Sumarlegur litur á nýjungunum frá RIG-TIG. mbl.is/RIG-TIG

Hið frábæra RIG-TIG sem er merki undir vel þekkta framleiðandanum Stelton er enn og aftur með nýjar freistingar fyrir okkur sem fáum aldrei nóg.

RIG-TIG stendur fyrir  að allt eigi að virka fullkomlega á meðan eldamennskan stendur yfir en nafnið þýðir í raun „allt eins og það á að vera“.

Það sem nýjungarnar hafa að geyma eru meðal annars pískari, steikarspaði, töng og skeiðar í afskaplega  fögrum ljósgrænum lit. Ásamt sítruslitaðri könnu og karöflu þar sem áferðin og lögun taka mann aftur til ársins 1950. Það verður ekki mikið sumarlegra en þetta.

Sítruslituð kanna og karafla sem setja sumarstemninguna á borðið.
Sítruslituð kanna og karafla sem setja sumarstemninguna á borðið. mbl.is/RIG-TIG
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert