Heimilismatur í hjarta borgarinnar

Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson og Gunnar Davíð Chan.
Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson og Gunnar Davíð Chan. Eggert Jóhannesson

Við veltum því lengi fyrir okkur hvað okkur fannst vanta og þetta varð niðurstaðan, segja þeir Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson og Gunnar Davíð Chan um nýjasta veitingastað borgarinnar, 108 Matur, sem er til húsa í Fákafeni 9. „Áherslan er lögð á heimilismat ef svo má að orði komast. Góður matur, gerður frá grunni úr frábæru hráefni. Við erum með góð grunnstef í gangi en leyfum okkur að vera aðeins uppátækjasamari í meðlætinu,“ segja þeir félagar um nýja staðinn, sem fengið hefur frábærar viðtökur.

Staðurinn er afskaplega hlýlegur í útliti og það fylgir því notaleg stemning að mæta í hádegismat þangað. Framsetningin á matnum er líka óvenjuleg og reyndar alveg bráðsnjöll, ekki síst þegar margir eru að koma á sama tíma og hafa knappan tíma til að borða. Þannig fer viðskiptavinurinn í röð, fær matinn afgreiddan á disk frá kokknum og raðar síðan meðlætinu sjálfur á diskinn. Hálfgerð sjálfsafgreiðsla sem tryggir að enginn tími tapast í dýrmætu hádegishléinu. Einnig er hægt að panta nokkra rétti beint af matseðli þannig að allir fá eitthvað við sitt hæfi.

Allt gert frá grunni

Staðurinn er afskaplega rúmgóður og rúmar fremri salurinn yfir 70 manns í sæti. Jafnframt er annar minni salur fyrir innan sem er mjög áhugaverð viðbót en þeir félagar segja að það komi vel til greina að vera með veislur eða leigja salinn út um helgar og á kvöldin. Eldhúsið sé það stórt og rúmgott að svigrúmið sé mikið en þetta sé allt á frumstigi enda staðurinn það nýr. Þegar blaðamann bar að garði var hádegistörnin rétt að byrja en meðal þess sem boðið var upp á var snitsel, steikt langa, ömmubollur, kjúklingastrimlar og fiskbollur. Að auki er alltaf hægt að fá salat, sjávarréttasúpu og kjúklingasamloku. Allt er gert frá grunni og segja þeir félagar að það skipti þá ákaflega miklu máli. „Bollurnar koma ekki bara tilbúnar í hús heldur erum við að laga þær sjálfir og lemja snitselið. Þetta er allt okkar verk og þannig viljum við hafa það. Eins ákváðum við að vera ekki með hefðbundna meðlætið eins og grænu baunirnar og rauðkálið heldur leyfa sköpunargleðinni að fá lausan tauminn þar,“ segja þeir um matinn, sem smakkast einstaklega vel, sem kemur auðvitað ekki á óvart. Við erum afskaplega sáttir við viðtökurnar og hingað er að koma fólk sem hefur komið nær daglega frá því við opnuðum. Það er ekki hægt að fá betri kúnna en það,“ segja þeir um viðtökurnar.

Staðurinn er opnaður klukkan hálftólf og lokað klukkan sex. Til stendur að bjóða upp á take-away-þjónustu þannig að hægt sé að panta matinn fyrr um daginn og sækja hann á leiðinni heim úr vinnunni. „Við erum spenntir fyrir þessum möguleika því þarna er kominn enn einn möguleikinn. Þetta er ekki það sem við myndum kalla skyndibita og þú þarft ekki að elda matinn sjálfur. Það verður því spennandi að sjá hvernig viðtökur þessi þjónusta fær. Eins erum við spenntir fyrir bæði fyrirtækjunum hér í kring sem og íbúðabyggðinni og vonum svo sannarlega að íbúarnir kíki hingað til okkar og kanni hvað við höfum upp á að bjóða.“

Meistarar í matargerð

Þeir félagar eru engir nýgræðingar í eldamennsku. Þeir voru m.a. hluti af teyminu á bak við veitingastaðinn Roadhouse á Snorrabrautinni og hafa starfað lengi saman. Samtals eru þeir með áratugareynslu í faginu og eru báðir með meistarapróf í matreiðslu. „Baldur vildi að við hengdum meistaraprófin okkar upp hérna frammi,“ segir Gunnar hlæjandi en Baldur stendur fastur á sínu og finnst nauðsynlegt að flagga þessu. „Þetta er svo virðulegt,“ segir hann brosandi og blaðamaður tekur undir þessi orð enda liggja matreiðslumeistarar ekki á lausu og þeir eru sjálfsagt ekki margir staðirnir þar sem finna má tvo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert