Umhverfisvæn í Eyjum

Bollarnir fallegu sem þjóna sem espresso bollar.
Bollarnir fallegu sem þjóna sem espresso bollar.

„Við höfum frá upphafi lagt áherslu á ábyrga stefnu gagnvart umhverfinu,“ segir Berglind Sigmarsdóttir, sem á og rekur veitingastaðinn GOTT ásamt eiginmanni sínum, Sigurði Gíslasyni matreiðslumanni. Þau hjónin leggja mikið upp úr endurnýtingu og er nánast allt leirtau staðarins notað auk þess sem þjónasvunturnar eru saumaðar úr gömlum gallabuxum.

GOTT var opnað árið 2013 í Vestmannaeyjum og var draumaverkefni þeirra hjóna sem voru að flytja aftur á æskuslóðirnar. „Þetta er búið að vera stórkostlegra ævintýri en við þorðum að vona. Hér er baklandið okkar, börnin okkar fá að upplifa stórkostlegt frelsi og við fáum að gera það sem við elskum.“

Veitingastaðurinn vakti strax mikla athygli og varð fljótt afar vinsæll enda maturinn bæði bragðgóður, gæðin og hráefnin í fyrirrúmi auk þess sem verðinu var stillt í hóf. Í fyrra var svo opnað GOTT Reykjavík í Hafnarstrætinu.

mbl.is/

Umhverfið í fyrirrúmi

Berglind segir umhverfisverndarmarkmiðin skýr. „Við reynum að hafa eins lítið plast og við mögulega getum. Seljum ekki drykki í plastflöskum og bjóðum hvorki upp á plaströr né plastpoka. Flest matarílát í eldhúsinu eru endurnýtt box. Sósuflöskurnar eru allar endurnýttar flöskur og allar take-away-umbúðir eru umhverfisvænar. Við flokkum jafnframt ruslið okkar og erum með skýr markmið gegn matarsóun,“ segir Berglind. Athygli vekur jafnframt að innviðir staðarins eru úr öllum áttum. „Tvö af stóru borðunum okkar eru endurnýttar hurðir með glerplötu ofan á,“ segir Berglind en allur borðbúnaður er einnig endurnýttur. Borðbúnaðinn kaupir hún hjá Kristbjörgu Traustadóttur á Akranesi sem selur notaða muni en Berglind hefur verslað mikið hjá henni í gegnum tíðina. „Öll ljósin inni á GOTT eru til að mynda frá henni og má segja að hún hafi verið mín kona í þessum málum enda búðin hennar æðisleg. Það er einnig frábær búð hér í Eyjum sem ég nota mikið.“

Svuntur staðarins verða allar saumaðar úr endurunnum gallabuxum. Frumgerðin er komin í hús og kemur mjög vel út. Þjónarnir eru spenntir fyrir þessu og finnst svunturnar bæði óvenjulegar og fallegar.

„Þetta er svo rökrétt þróun. Við sem rekstraraðilar verðum að axla ábyrgð á umhverfinu og leggja okkar af mörkum til þess að gefa gömlum hlutum nýtt líf og draga þannig úr neyslunni,“ segir Berglind að lokum.

mbl.is/
mbl.is/
Hurðin hefur fengið endurnýjun lífdaga sem borð og þykir afar …
Hurðin hefur fengið endurnýjun lífdaga sem borð og þykir afar vel heppnuð. mbl.is/
mbl.is/
Nýju svunturnar voru áður gallabuxur og þykja nú afbragðs svuntur.
Nýju svunturnar voru áður gallabuxur og þykja nú afbragðs svuntur.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert