Kjúklingabringur sem búið er að fylla með osti og gúmmelaði. Er eitthvað betra? Á degi sem þessum er svarið klárlega nei og því þökkum við Tinnu Alavis einlæglega fyrir þessa snilld og bjóðum að sjálfsögðu upp á fylltar kjúklingabringur í kvöldmat.
Spínat- og ostafylltar kjúklingabringur
- 4 kjúklingabringur
- 1 poki spínat
- 1 laukur
- 4 hvítlauksrif
- 1 bakki sveppir
- 1 poki Mozzarella ostur frá Gott í matinn
- ½ Óðals-Tindur frá MS
- Gróft salt + svartur pipar
- Íslenskt smjör til steikingar
Aðferð:
- Skerðu lárétta rifu í miðjuna á kjúklingabringunni þannig að myndist eins konar vasi.
- Næst er laukur, hvítlaukur og sveppir steikt á pönnu við miðlungshita. Setjið í skál til hliðar.
- Steikið spínatið í stutta stund þar til safaríkt og mjúkt og skerið smátt.
- Takið stóra skál og hellið mozzarella-ostinum ofan í ásamt rifnum Óðals-Tindi.
- Blandið steikta grænmetinu vel saman við ostinn ásamt spínatinu.
- Setjið fyllinguna ofan í vasann á kjúklingnum. Mér finnst best að halda fyllingunni inni í bringunni með tannstönglum (sem eru svo teknir úr áður en maturinn er borinn fram).
- Kryddið bringuna fyrir steikingu með grófu salti, svörtum pipar og eðalkjúklingakryddi.
- Steikið bringurnar upp úr íslensku smjöri þar til þær eru farnar að brúnast. U.þ.b. 5 mínútur á hvorri hlið.
- Setjið bringurnar í eldfast mót og bakið í ofni á blæstri (180°C) í 30 mínútur eða þar til fulleldaðar.
- Fyllinguna sem verður eftir finnst mér gott að setja ofan í eldfasta mótið til hliðar.