Ilmandi góður gosdrykkur í dós

Hvernig finnst þér Mountain Dew - viltu að heimilið ilmi …
Hvernig finnst þér Mountain Dew - viltu að heimilið ilmi af drykknum? mbl.is/Etsy716 Candle Co.

Hvað gerir þú þegar uppáhalds gosdrykkurinn þinn kemur í ilmandi útgáfu í dós? Þú verður að sjálfsögðu að eignast hann!

Fyrir einhverjum er Mountain Dew ósköp venjulegur gosdrykkur – en fyrir öðrum er hann sá allra besti sem slekkur á þorstanum. Nú getur þú aðdáandi góður, eignast kerti sem ilmar nákvæmlega eins og gosdrykkurinn vinsæli. Kertið er fáanlegt á heimasíðu Etsy hjá 716 Candle Co. og er framleitt úr 100% sojavaxi, unnið úr bandarískum sojabaunum.

Ef svo vill til að þú viljir ekki þessa ákveðnu lykt en vilt dósina sjálfa, þá er valið á milli 40 mismunandi ilma. Eins er kertið fáanlegt í diet útgáfu og á heimasíðunni má einnig finna ilmkerti eins og Dr. Pepper, Pepsi og Coca-Cola svo eitthvað sé nefnt.

Þeir sem verslað hafa Mountain Dew kertið á netinu hafa gefið því góða dóma og segja það ilma nákvæmlega eins og drykkurinn sjálfur.

Mountain Dew ilmkerti í dós! Líka hægt að fá sem …
Mountain Dew ilmkerti í dós! Líka hægt að fá sem "diet". mbl.is/Etsy716 Candle Co.
Þessi kerti eru fyrir þá allra hörðustu í gosdrykkjaþambinu.
Þessi kerti eru fyrir þá allra hörðustu í gosdrykkjaþambinu. mbl.is/Etsy716 Candle Co.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert