Þau stórkostlegu tíðindi berast að hin eina sanna Berglind Hreiðarsdóttir, sem ætti að vera lesendum Matarvefsins á mbl.is að góðu kunn, er að gefa út sína fyrstu bók fyrir jólin. Bókin er væntanleg í nóvember og verður farið rækilega yfir það í henni hvernig halda á veislur af ýmsum toga á sem snjallastan og hagkvæmastan hátt.
Fáir eru flinkari í veisluhaldi en Berglind og því verður bókin að teljast mikill hvalreki fyrir alla þá sem þurfa að ferma, útskrifa eða bjóða fólki í afmæli á komandi misserum.
Hér gefur að líta eitt af meistarastykkjum Berglindar, en þetta er gulrótarkaka með guðdómlegu rjómaostakremi.
Gulrótarkaka með rjómaostskremi
- 290 g hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- ½ tsk. matarsódi
- 1 tsk. salt
- 2 tsk. kanill
- ½ tsk. múskat
- ¼ tsk. negull
- 300 ml matarolía
- 220 g púðursykur
- 220 g sykur
- 4 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 260 g rifnar gulrætur
Aðferð:
- Hitið ofninn 175°C og gerið 3x15 cm kökuform tilbúin.
- Setjið hveiti, lyftiduft, matarsóda, salt, kanil, múskat og negul í skál og leggið til hliðar.
- Hrærið saman matarolíu og púðursykri í hrærivélarskálinni og bætið síðan eggjunum saman við, einu í einu og skafið vel niður á milli.
- Hellið þá vanilludropunum út í skálina og síðan þurrefnunum í nokkrum skömmtum.
- Að lokum fara rifnar gulrætur út í, ég notaði fínt rifjárn en ef þið viljið grófari áferð má rífa þær gróft.
- Klippið bökunarpappír í botninn á formunum og spreyið þau vel með matarolíuspreyi.
- Skiptið deiginu jafnt niður á milli formanna (ég vigtaði um 515-520 g í hvert).
- Bakið í um 50 mínútur, eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á en ekki blautu deigi.
Rjómaostskrem
- 135 g smjör við stofuhita
- 200 g rjómaostur við stofuhita
- 750 g flórsykur
- 4 tsk. vanilludropar
Aðferð:
- Þeytið saman smjör og rjómaost þar til það er létt og ljóst.
- Bætið flórsykri saman við í nokkrum skömmtum, skafið niður á milli og hrærið vel.
- Að lokum fara vanilludroparnir saman við.
- Kreminu er smurt á milli botna og kakan hjúpuð að utan. Hafið kremhjúpinn þykkan á toppnum en skafið hann vel af á hliðunum svo það sjáist í botnana.
- Skreytið með ferskum blómum/haustblómum að vild.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Berglind Hreiðarsdóttir
Haraldur Jónasson/Hari