Kvöldmaturinn sem fær þig til að fara í heljarstökk

Stórkostlegar vorrúllur sem enginn avókadó unnandi ætti að láta framhjá …
Stórkostlegar vorrúllur sem enginn avókadó unnandi ætti að láta framhjá sér fara. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Ef einhver kann að meðhöndla og elda með avókadó, þá er það Hildur Rut sem deilir hér með okkur enn einni bragðbombunni sem inniheldur avókadó.

Sjálf hefur hún þetta um réttinn að segja; „Það eru örugglega fleiri en ég sem elska „avocado eggroll“ á Cheesecake factory í Bandaríkjunum. En sá réttur er fyrirmyndin af þessari uppskrift. Ég sá svo Tinnu Þorradóttur gera þessa dásemdar kóríander sósu og ég varð bara að prófa að gera hana með. Hún passar sérlega vel með vorrúllunum. Það er svo lítið mál að gera þetta og ég mæli með að þið prófið. Þetta er ótrúlega gott.“

Avókadó vorrúllur (6 vorrúllur)

  • 2 stór avókado (eða 3 lítil avókadó)
  • 1-2 tómatar
  • 2 msk. kóríander
  • 3 msk. blaðlaukur
  • Safi úr ½ lime
  • Chili flögur
  • Salt og pipar
  • Egg
  • 2 dl olía (ég notaði steikingarolíuna frá Olifa)
  • Fílódeig (frá Phillsbury, fæst t.d. í Krónunni og Hagkaup)

Kóríander sósa

  • 3 msk. sýrður rjómi
  • 1 msk. majónes
  • 3 msk. kóríander
  • Safi úr ½ lime
  • ½ tsk. limebörkur
  • Salt og pipar
  • Smá hvítlaukssalt

Aðferð:

  1. Stappið avókadóið gróflega með kartöflustappara.
  2. Skerið tómatana, kóríander og blaðlauk smátt og hrærið saman við avókadóið. Kreistið safa úr lime og kryddið með salti, pipar og chili flögum.
  3. Skerið fílódeigið í 6 ferninga. Ein plata af deiginu gerir 2 skammta.
  4. Dreifið avókadóstöppunni jafnt í miðjuna á öllum skömmtunum.
  5. Pískið egg og penslið hornin á deiginu.
  6. Pakkið deiginu saman eins og umslagi og myndið úr því 6 rúllur. Farið varlega af því að deigið er viðkvæmt. Ef það kemur gat á deigið þá er gott að taka bút af deiginu, bleytið það með egginu og setjið yfir gatið.
  7. Hitið olíuna í háum potti.
  8. Steikið vorrúllurnar upp úr olíunni þangað til að þær verða gylltar og stökkar. Passið að olían sé orðin heit. Mér finnst gott að dýfa viðarskapti á skeið í olíuna og þegar hún er orðin heit þá bullsýður viðurinn.
  9. Skerið vorrúllurnar í tvennt og berið fram með kóríander sósunni.

Kóríander sósa

  1. Saxið kóranderinn smátt og blandið öllum hráefnunum saman í skál. Berið fram með vorrúllunum.
Kóríander sósan setur svo toppinn yfið i-ið.
Kóríander sósan setur svo toppinn yfið i-ið. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert