Pizza bolognese með aukaosti

Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Þetta er með því snjallara sem sést hefur en Halla Bára á Home & delicious er hér með máltíð sem ætti að slá í gegn á hverju heimili. 

„Þetta er ein virkilega góð leið til að nýta afganga. Margir elda hakk og spagettí mjög reglulega, aðrir spagettí bolognese og enn aðrir einhverja allt aðra útgáfu. Þessir réttir eiga það hins vegar sammerkt að vera rosalega góðir á pizzu eftir að hafa verið notaðir í eina máltíð. Pizza bolognese er hugmynd sem er alls ekki mín en ég hef notað hana svo oft og í svo mörgum útfærslum. Hér er hugmyndin full af góðum ostum til að gera máltíðina enn meira djúsí og heillandi. Réttur sem slær alltaf í gegn; við öll tilefni og á hvaða tíma dagsins sem er."

Pizza bolognese með aukaosti

  • Pizzabotn, heimalagaður eða keyptur tilbúinn
  • Góð ólífuolía
  • Bolognese eða eldað hakk í hvaða mynd sem er
  • Rjómaostur
  • Rifinn ostur
  • Mozzarella-kúlur
  • Oreganó

Aðferð:

Má hiklaust bæta við piparosti, gráðaosti eða öðrum krydduðum osti ofan á pizzuna.

Hitið ofn í 220 gráður. Fletjið pizzadeigið út. Dreypið ólífuolíu yfir deigið. Stráið rifnum osti yfir deigið. Hitið hakkblönduna sem þið notið. Hrærið saman við hana vænni slettu af rjómaosti og látið bráðna vel. Dreifið úr hakkinu yfir pizzuna og rifna ostinn. Rífið litlu mozzarellakúlurnar niður og yfir allt saman. Bætið fleiri ostum við ef þið kjósið svo. Stráið smá af oreganó yfir allt. Bakið þar til botninn er klár og ostarnir vel bráðnir. Berið fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert