Svona losnar þú við raka á rúðunum

Myndast raki og bleyta í gluggunum heima hjá þér?
Myndast raki og bleyta í gluggunum heima hjá þér? mbl.is/Colourbox

Þú kannast kannski við að vakna á morgnana og allir gluggar eru hálfblautir af raka. Hér eru nokkur ráð um hvernig megi bera sig að til að koma í veg fyrir þetta leiðindavandamál.

Ryk og raki á rúðum getur nefnilega valdið skemmdum og það geta byrjað að myndast sveppir í körmunum. Hvort tveggja skapar óheilsusamlegt loftslag á heimilinu og að þessu ber að gæta.

  • Sjáðu til þess að lofta út og fáðu gegnumtrekk á heimilinu – daglega, og jafnvel tvisvar á dag.
  • Þurrkaðu alltaf með eldhúsrúllu eða tusku jafnóðum og þú sérð að raki byrjar að myndast á glerinu.
  • Ofnar undir gluggum koma að góðum notum (ef þú ert með kveikt á þeim). Þeir sjá til þess að loftið haldist þurrt þegar það mætir köldum glugganum og þá myndast síður raki.
  • Reynið að halda sama hitastiginu í gegnum allt húsið. Það er ekki gott að hafa eitt eða tvö herbergi í húsinu með enga kyndingu.
  • Er kannski kominn tími til að skipta um gler í gluggunum? Gamlir gluggar eru ekki gæddir sömu einangrunareiginleikum og nýir.
  • Fáðu þér rakamæli. Loftrakinn á ekki að vera hærri en 50-55% yfir vetrartímann.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert