Svaðalegasta kvöldmáltíð síðari ára

Ljósmynd/María Gomez

Hin eina sanna María Gomez á Paz.is á þessa uppskrift sem er ein sú SVAÐALEGASTA sem sést hefur í áratugi.

„Í stað kornflakes þá nota ég hér parmesan ost og ostanachos til að hjúpa kjúklinginn áður en hann er settur inn í ofn. Hér er ekkert steikt né djúpsteikt."

„Hér er lítið vesen á ferðinni og þarf í raun ekkert að útbúa nema kjúklinginn og piparmayóið. Rösti kartöflurnar keypti ég bara frosnar frá Aviko en þær eru mjög góðar og fást á mörgum stöðum í frystikæli," segir María um þennan stórkostlega rétt.

Boxmaster með rösti kartöflu, piparmayo, osti og nachos

Hráefni

  • 1-2 pakkar Mission Wraps vefjur með grillrönd (það eru 6 í pakka) 
  • Aviko Rösti kartöflur frosnar (reiknið með 2 í hvern Boxmaster)
  • 4 kjúklingabringur 
  • 170 gr ostanachos 
  • 60 gr rifinn parmesan ostur 
  • 3 egg 
  • 2 tsk. timian 
  • ½ tsk. fínt borðsalt 
  • 1 tsk. cayenne 
  • ½ bolli hveiti 
  • 1 box af smátómötum að ykkar vali 
  • 1 pottur lambahasalat 
  • Auka nachoflögur með ykkar uppáhalds bragði (osta, chili, salti eða papriku sem dæmi)
  • 8 ostasneiðar 

Piparmayo:

  • 3 dl Heinz majónes
  • 1/2 tsk. sítrónusafi beint úr ávextinum
  • 1 og 1/2  tsk. svartur pipar
  • 1/2 tsk. borðsalt 

Aðferð

  1. Setjið nachos og rifinn parmesan í blandara og maukið þar til orðið alveg að dufti 
  2. Setjið hveiti í eina skál og parmesan nachoið í aðra
  3. Hrærið eggjunum saman ásamt salti, cayenne pipar og þurrkað Timian í þriðju skálina
  4. Hitið ofninn á 210-220°C blástur
  5. Skerið svo bringurnar  þversum í gegn til að gera tvær þunnar bringur úr einni bringu svo úr verði 8 þunnar bringur
  6. Byrjið á að velta kjúklingnum fyrst upp úr hveiti, svo eggi og að lokum upp úr parmesan nachos
  7. Raðið bitunum á ofnplötu með bökunarpappa og setjið svo í ofn í 25-30 mínútur
  8. Bakið Rösti kartöflunar með í jafnlangan tíma á sama hita 
  9. Útbúið grænmetið og piparmayóið á meðan
  10. Skerið tómatana í litla bita og takið svo kálið í sundur úr pottinum 
  11. Í piparmayóið er öllu hrært saman þ.e majónesi, pipar, salti og sítrónusafa
  12. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn lækkið þá ofninn í 180°C og takið hann út. Setjið næst vefjur saman með því að smyrja á þær piparmajó, setja kál og tómata, 1 bita af kjúkling, 2 rösti og eina ostasneið ásamt nokkrum flögum af nachoi og enn meira piparmayo. 
  13. Brettið botninn af vefjunni upp og hliðarnar yfir botninn, gott er svo að stinga pinna í þær eins og nælu til að halda þeim saman
  14. Setjið svo inn í 180°C heitan ofninn í 4 -5 mínútur 
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert