Hægeldað indverskt nautakarrý

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Það er ekki hægt að segja neitt nema gott um þessa uppskrift enda er hún bæði bragðgóð og spennandi. Það er Berglind Guðmunds á GRGS.is sem á heiðurinn að henni en hægeldað nautakjöt í indverskum búningi ætti að hljóma vel í allra eyru.

Hægeldað indverskt nautakarrý

  • 2 msk. olía
  • 1 dl hveiti
  • salt og pipar
  • 1 kg nautakjöt, t.d. nautafillet
  • 2 msk. nautakraftur frá Oscar's
  • 400 ml heitt vatn
  • 1 dós kókosmjólk, t.d. frá Blue Dragon
  • 500 g litlar kartöflur
  • Safi úr 1 límónu

Karrýmauk frá grunni

  • 1 rauðlaukur, gróflega skorinn
  • 2-3 rauð chilí, gróflega söxuð
  • 2 tsk. kóríanderkrydd
  • 2 tsk. cumin (ekki kúmen)
  • 1/2 tsk. kanill
  • 1/2 tsk. hvítur pipar
  • 4-6 hvítlauksrif
  • 1 tsk. rifið engifer
  • 3 tsk. fiskisósa (fish sauce frá Blue Dragon)
  • 1 tsk. púðursykur
  • 3-4 stilkar af fersku kóríander
  • 1/2 tsk. salt

Annað

  • Hrísgrjón
  • ferskt kóríander, saxað
  • límóna, skorin í litla báta

Aðferð:

  1. Blandið öllum hráefnum fyrir karrýmaukið saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Geymið.
  2. Setjið hveiti á disk og bætið salti og pipar saman við. Skerið kjötið í munnbita og veltið upp úr hveitinu.
  3. Hitið olíu á stórri pönnu eða í potti og brúnið kjötið (ágætt að skipta þessu niður í tvo hluta).
  4. Lækkið hitann og bætið karrýmaukinu saman við og steikið áfram í nokkrar mínútur.
  5. Setjið nautakraft í heitt vatn og hellið því saman við kjötið ásamt kókosmjólkinni.
  6. Lækkið hitann og hægeldið í 1 klst. og 30 mínútur. Bætið við nautasoði ef þörf er á.
  7. Skerið kartöflurnar niður til helminga eða í fernt og bætið saman við. Sjóðið áfram í 20-30 mínútur.
  8. Kreistið safa úr einni límónu og bætið saman við. Saxið kóríander og stráið yfir ásamt sneiðum af chilí.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert