Mikilvæg skilaboð ef þú pissar í sturtuna

Laumast þú stundum til að pissa í sturtuna? Það er …
Laumast þú stundum til að pissa í sturtuna? Það er alveg meinlaust og hið besta mál ef út í það er farið. mbl.is/Colourbox

Það eru margir sem pissa í sturtuna án þess að viðurkenna það. En er það góð hugmynd?

Eina sem við getum sagt er, að ef þú pissar nú þegar í sturtuna, þá skaltu bara halda því áfram. Fram til þessa hafa engar upplýsingar komið fram um að það sé óþrifalegt eða hættulegt að pissa á meðan þú ert að þvo þér í sturtu. Og þú ert alls ekki ein/n í heiminum með að pissa í sturtuna, því samkvæmt rannsókn ameríska fjölmiðilsins Today pissa átta af hverjum tíu á meðan þeir sturta sig.

Hreinlæti

Í staðinn fyrir að vesenast með klósettpappír og reyna að þurrka bakteríurnar burt sér vatnið um það fyrir þig. Hreinlegt og ekkert vesen.

Þrif

Bæði menn og konur eiga það til að pissa smávegis út fyrir á klósettinu sjálfu. Það er engar áhyggjur af þessu að hafa ef þú pissar í sturtuna.

Þú ert tilbúinn í hvað sem er

Í raun geturðu æft þig í sturtu að pissa ekki á fæturna og vera tilbúin/n í hvaða útilegu sem er í sumar.

Það er gaman

Þú verður að viðurkenna að það er pínu skemmtilegt og djarft að pissa í sturtuna. Svo lengi sem þú pissar ekki á meðan þú liggur í baði ertu í góðum málum. 

mbl.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert