Kjúklingarétturinn sem þykir stórkostlegur

Ljósmynd/Linda Ben

Þessi réttur er algjört æði. Hann er einfaldur og það þarf lítið sem ekkert að vaska upp — sem er alltaf kostur.

Rétturinn samanstendur af kjúklingabringum, sætum kartöflum, sveppum, rauðlauk, rjóma og rifnum osti. Kjúklingabringurnar eru skornar í tvennt, þvert, svo eldunartíminn er töluvert styttri en ef bringurnar væru ekki skornar þvert.

Það er engin önnur en Linda Ben sem á þessa uppskrift og eins og við vitum þá er allt sem hún gerir gott.

„Allt í einu fati er mín allra uppáhaldseldunaraðferð en það kallar á að smella öllum innihaldsefnum inn í eitt fat sem er allt bakað í ofni, rétt eins og nafnið gefur til kynna. Að elda mat með þessari aðferð gerir það að verkum að brögðin blandast vel saman, grænmetið verður gífurlega djúsí og bragðmikið og kjúklingurinn safaríkur."

Kjúklingur og grænmeti eldað í einu fati

  • 2 kjúklingabringur
  • ½ tsk. paprika krydd
  • Salt og pipar
  • ½ tsk. oreganó
  • 1 meðalstór sæt kartafla
  • 250 g sveppir
  • ½ rauðlaukur
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 3 dl rjómi
  • 2 tsk. kjúklingakraftur frá Oscar
  • 200 g rifinn ostur með pipar
  • Ferskt rósmarín

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C og undir+yfir hita.
  2. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt þvert og langsum yfir bringurnar, kryddið þær með salt, pipar, paprikukryddi og oreganó, leggið til hliðar á meðan grænmetið er gert tilbúið.
  3. Flysjið kartöfluna og skerið hana í litla bita. Skerið sveppina, hvern svepp í 4 hluta. Skerið rauðlaukinn og hvítlaukinn smátt niður, og setjið allt saman í frekar stórt eldfast mót.
  4. Setjið kjúklingakraft út í rjómann, hrærið og hellið yfir grænmetið. Dreifið u.þ.b. 100 g af rifna ostinum yfir, kryddið með salt, pipar og oreganó, hrærið örlítið í.
  5. Leggið kjúklingabringurnar yfir og bakið í ofni í 20 mín. Setjið þá restina af ostinum yfir kjúklinginn og bakið þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn og osturinn byrjaður að verða gullinn (u.þ.b. 15 mín. í viðbót). Skreytið með fersku rósmaríni.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert