Ráðlagður dagskammtur í einni skál

Girnileg og litrík morgunskál sem setur daginn í gang.
Girnileg og litrík morgunskál sem setur daginn í gang. mbl.is/Colourbox

Það er ekki alltaf auðvelt að borða þessi 600 grömm af ávöxtum og grænmeti sem við eigum að innbyrða yfir daginn. En með þessari uppskrift ertu á réttri leið. Hér færðu hollan og auðvelda uppskrift að morgunmat sem er stútfull af góðum vítamínum.

Ráðlagður dagskammtur í einni skál (fyrir 2)

  • 2 bananar
  • 2 handfylli frosnar baunir
  • 2 handfylli frosið brokkolí
  • 2 handfylli frosið spínat
  • 2 dl vatn, má líka vera haframjólk eða skyr
  • 1 tsk. hörfræolía
  • Annað: uppáhalds berin þín, kókosmjöl, chiafræ, sólblómakjarnar og möndlur

Aðferð:

  1. Taktu frostvörurnar út með góðum fyrirvara og leyfðu þeim að þiðna í blandaranum í nokkrar mínútur.
  2. Brjóttu bananann í minni bita og settu út í blandarann.
  3. Setjið vatnið út í og byrjið að blanda saman þar til allir „kögglar“ eru farnir. Bætið þá olíunni saman við.
  4. Hellið í tvær skálar og skreytið með þeim berjum og fræjum sem þú óskar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert