Sjáland: Rauðrófucarpaccio með foie gras

Ásdís Ásgeirsdóttir

Hér erum við með uppskrift fyrir lengra komna en við erum að tala um hágæða foie gras með meðlæti sem á fá sína líka. Uppskriftin kemur úr smiðju kokkanna á Sjálandi sem slá ekki feilnótu fremur en fyrri daginn.

Rauðrófucarpaccio með foie gras

Fyrir 4

  • 1 meðalstór rauðrófa
  • 100 g fíkjur í karamellu
  • 100 g majónes
  • 50 g reyktur Tindur frá MS
  • 40 g foie gras terrine (fæst í betri sælkerabúðum)
  • 50 g rauðrófusafi úr flösku
  • 50 g góður eplasafi
  • 2 msk. reykt olía (eða mjög góð ólífuolía)
  • poppað bygg
  • jarðskokkaaska

Bakið rauðrófur með hýði í ofni við 180°C í um klukkustund, eða þar til þær eru mjúkar í gegn. Kælið niður og skrælið. Skerið rauðrófuna í mjög þunnar sneiðar, gott að nota mandólín eða mjög beittan hníf í það minnsta. Blandið saman rauðrófusafa, eplasafa og reyktri olíu og marínerið rauðrófuþynnurnar í leginum í að minnsta kosti klukkustund.

Setjið fíkjurnar í blandara og maukið í fínt mauk. Smakkið til með salti og eplaediki. Skerið foie gras-terrínið í grófa bita.

Blandið saman reyktum ostinum og helmingnum af majónesinu í blandara og maukið fínt.

Blandið þá restinni af majónesinu saman við og smakkið til með salti.

Raðið réttinum fallega upp á disk og skreytið með poppuðu byggi og jarðskokkaösku. Hér er gott að nota hugmyndaflugið ef þessir tveir hlutir leynast ekki í búrskápnum, og nota til að mynda poppkorn, ristuð fræ eða eitthvað slíkt.

Ásdís Ásgeirsdóttir
Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert