KFC fagnar 40 ára afmæli – níundi hver fær afmælisfötu

mbl.is/kfcjamaica.com

Í dag eru nákvæmlega 40 ár síðan fyrsti KFC-staðurinn var opnaður á Íslandi, 9. október 1980. Þá voru 50 ár liðin frá stofnun KFC og því hafa Íslendingar notið veitinga ofurstans í að verða helming tímans sem liðinn er frá því að Colonel Harland Sanders opnaði sinn fyrsta stað í Kentucky í Bandaríkjunum árið 1930.

Það var Helgi Vilhjálmsson, gjarnan kallaður Helgi í Góu, sem stóð fyrir innrás ofurstans og hefur komið að rekstrinum sleitulaust síðan en afkomendur hans sjá um daglegan rekstur í dag. Fyrsti staðurinn var opnaður við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði og stendur þar enn, en nú eru staðirnir alls átta talsins, þar af sex á höfuðborgarsvæðinu, einn í Reykjanesbæ og einn á Selfossi.

Í tilefni afmælisins stendur KFC fyrir leik í bílalúgum allra staða sinna. Þannig fær níundi hver bíll afmælisfötu með níu leggjum gefins í allan dag.

Fyrsta blaðaauglýsing KFC sem birtist í fjölmiðlum fimmtudaginn 9. október …
Fyrsta blaðaauglýsing KFC sem birtist í fjölmiðlum fimmtudaginn 9. október 1980. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert